Jájá mín bara á leiðinni til Íslands!!
Kem á fimmtudaginnn 23. júní um miðnætti og fer aftur mánudaginn 27. júní.
Þetta er nú soldil vinnuferð og svo verður auðvitað fagnað afmælinu hennar Berglindar. Mér þætti gaman að komast á kaffihús með vinkonunum kannski á föstudaginn ef það er hægt að koma því í kring, en ég lofa engu djammi.
Eins og ég segi nóg að gera og lítill tími til að gera allt það sem manni langar til að gera, eins og til dæmis að fara á bæjarins bestu, fara í sund og hitta alla sem ég þekki!!
En þar sem þetta verður líklega allt mitt sumarfrí á Íslandi ætla ég að reyna að gera eins mikið úr því og ég mögulega get!!
knúz
Ingípíngí

<< Home