fimmtudagur, júní 09, 2005

Nú segi ég í annað sinn það sem ég sagði þegar ég kláraði stúdentsprófið í lögfræði: "ALDREI meiri lögfræði!!" Héreftir verða þar til gerðir sérfræðingar látnir sjá um slík mál... nema auðvitað ef ég fell.... sem gerist auðvitað ekki, ætla ekki að fara að byrja á svoleiðis veseni núna!!
Jamm og jæja bara eitt próf eftir og fullt af stressi, einstaklings munnlegt próf.... úff, soldið of mikið efni sem maður þarf að hafa stjórn á. En ég held ég sé ekkert í vondum málum, á þokkalega auðvelt með þetta fag.... svo við vonum bara það besta. Það er svo skrítið með mig að stressið mitt gengur ekki útá að ég kunni ekki eftnið (þó það sé stundum raunin) heldur að ég gleymi hvernig eigi að tala dönsku... skrítið!!
Nóg af próftali í bili
kveðjur úr massan góðu veðri!!

   |