laugardagur, maí 14, 2005

Já dagurinn í gær var alls ekki slæmur, þó ekkert sérstakt hafi gerst, ég fór í ræktina og þreyf hjólið mitt svo það er orðið glansandi fínt!! ég talaði við Berglindi öruglega í 2 klst. og svo um kvöldið fórum við Magga á kaffihús og spjölluðum okkur spjörunum úr.... hehe er það til?!
Í dag er Gummi að leika í auglýsingu fyrir Samsung, hann er statisti og fær 1000 DKK fyrir það svo það er ágætt.
Ég ætla að læra í dag og kannski skella mér út að skokka það er svo ágætt veður. Svo fer ég öruglega að hitta Möggu á eftir.
blæ í bili!!

   |