Það var æðislegt veður í dag. Ég fór út að stússast, fór í skólann að prennta glósur, gekk frá ýmsum málum og lét skipta um slöngu í hjólinu mínu (tókst að sprengja svona líka glæsilega). Nú sit ég með maska á andlitinu og er að reyna að verða fallegri... maður er alltaf að reyna ;)
Á morgun ætla ég að fara að læra með Möggu... við ætlum að taka smá maraþon. Nú þegar allir eru að klára próf erum við rétt að byrja... já svona er lífið, ekki alltaf sangjarnt!!

<< Home