mánudagur, maí 09, 2005

Á föstudaginn var fóru mamma og pabbi heim eftir vel hepnaða heimsókn. Rósbjörg frænka hans Gumma kom í staðinn til að sjá um að okkur mundi ekki leiðast, við fórum með henni á flóamarkaði á laugardeginum og fórum svo um kvöldið á hörku sveitaball með mönnum í svörtum fötum. Þetta ball var alveg svakalega vel heppnað, aðallega vegna lagavals hljómsveitarinnar og þeim félagsskap sem við höfðum: Magga, Heiða, Andri, Stefán, Gummi og Rósbjörg... og það þarf nú ekki að íttreka það að Rósbjörg er alveg svakalegur tjúttari!!! maður átti bara erfit með að halda í við hana ;) En svo áðan fórum við á kaffihús saman og höfðum það huggó...
Þetta var allt í bili, heyrumst!!

   |