þriðjudagur, apríl 26, 2005

Jájá, mín er bara í góðum gír. Tók mér frí frá lestrinum í gær til að fara með Möggu niðrí bæ og sitja útí sólinni og fá okkur einn bjór... það var alveg geggjað!! Svo fórum við heim til mín, Heiða skarst í hópinn og við elduðum Lasagnia saman.
Í dag er ég svo búin að vera að lesa. En áðan fór ég út að skokka og ákvað að prófa eithvað nýtt og fór 7,5 kílómetra... ég náði allavega að svitna soldið við það!! Nú ætla ég svo að fara að þvo þvott og lesa meira... lesiles!!

   |