miðvikudagur, maí 04, 2005

Já maður hefur það bara gott eins og vanalega, í góðu veðri og umkringdur fjölskyldu og vinum. Mamma og Pabbi eru hjá mér núna, pabbi er á rölti niðrí bæ og múttan er að stússast í eldhúsinu á meðan við Gummi lærum.... hehehe... mamma kemur í heimsókn og henni er bara skellt í eldhúsið :) Inga Rós og Gulli koma í mat í kvöld í lambalæri sem mamman kom með!! Svo lofa ég að sjá um eldamennskuna eftir það.
Annars gengur allt vel, maður hamast við að lesa upp lögfræðina og reynir um leið að njóta þess að sumarið sé að nálgast... enda erfit að halda einbeitningunni í heilan mánuð í upplestrarfríi!!

   |