fimmtudagur, apríl 21, 2005

Gleðilegt sumar gott fólk!!
Í dag er fallegur sólskinsdagur, en það mætti vera aðeins hlýrra!
Ég fór í morgun að vinna í verkefnavinnu, og viti menn... við kláruðum það bara si svona (ég var nú samt búin að gera slatta í gær). Svo nú hef ég alla helgina til að lesa undir lögfræðina, ég er nefninlega að fara í svona "prufu" próf á mánudaginn. Danirnir eru svo fyndnir, halda æfingarpróf sem gildir ekki neitt!!
Þegar ég fer í búðir kem ég vanalega heim með sæta flík eða eithvað álíka... en Gummi kom einn daginn heim með stóra tösku með borum sem flettist út 4 sinnum!!! Þetta var víst eithvað gott tilboð... við Gummi erum nefninlega alltaf að reyna að gera enn fínna hjá okkur. Gummi ætlaði að setja svona stokk sem Daníel smíðaði utan um rörin inni á baði. Það endaði með að við vorum búin að stækka íbúðina okkar um 80 fermetra!! jájá, Það var bara borað gat í gegnum vegginn, inní næstu íbúð!! Við töluðum auðvitað við kelluna sem býr þarna og þetta var ekkert mál, hún sagði að þetta hafði líka gerst þegar eldhúsið hafði verið sett upp í íbúðinni okkar... greyið kellan, með uppspaslaðar holur uppum alla veggi!! Þessi veggjaþynnildi útskýra kannski hroturnar sem við heyrum inni á baði á hverju kvöld frá klukkan 21!!
Já, það er líf og fjör í Höbninni!

   |