Það er alveg á hreinu að það líður of langt milli skrifta hjá mér... en ég hef afsökun, eins og alltaf: Ég er búin að vera með gesti...
Ég kom frá Berglind á Miðvikudagsmorguninn í síðustu viku, Berglilnd kom með mér og Mamma og Pabbi komu á Fimmtudagsmorguninn. Við áttum góða helgi, Brian sonur hennar Móu kom frá Århus til að tjútta með okkur. Dagskráin fór nú ekki eins og planið var þar sem "mikill" snjóstorumur kom og við urðum næstum úti vegna þess að strætó og leigubíla fólkið ákvað að leggjast í dvala á meðan á veðrinu stóð... en ég verð nú bara að segja að strætóarnir keyra í verra veðri á Íslandi!! En hvað sem því líður tókst hetjunum okkar (Pabbi og Gummi) að redda málum svo við náðum út að borða og í leikhús. Berglind fór svo aftur á Sunnudaginn var. Mamma og Pabbi fóru svo til Íslands í gær eftir miklar útréttingar, afslöppun, viðskiptaheimsóknir, verslunarferðir og heimsókn í nýja óperuhúsið en þar sem uppselt er á allar sýningar fram á sumar fórum við bara á kaffihúsið þeirra.
Ásta var hérna á sýningu um helgina og við hittum hana og Ásgeir í bana stuði... Ásta á klárlega gullmola helgarinna þar sem hún sagði við þjónustustúlkuna á barnum: "skal du hente os ud?!" Ágætis samsetning á íslensku og dönsku :) Við fórum á sýninguna hennar og kíktum á mikilfenglegheitin!! Ásta stóð sig eins og hetja og ef mér skjátlast ekki þá tókst henni meira að segja að ná fram nokkrum sölum!!
En nú erum við Gummi bara ein í kotinu og höfum það rosalega gott eins og alltaf. Búin að þrífa, þvo þvott, fara í ræktina og þið vitið... allan pakkan...
En þá er bara að búa sig undir næstu helgi þar sem við förum til Íslands í afmæli Steinunnar Ástu mömmu hans Gumma.... það er alltaf nóg að gera ;)

<< Home