Ég er í Sheffield hjá Berglind núna, ég fór á fimmtudagsmorguninn strax eftir prófin, sem gengu vel.
Ég vaknaði klukkan fimm um morguninn til að taka strætó útá flugvöll, þegar ég var komin hálfa leið útá flugvöll fattaði ég að ég hafði gleymt passanum mínum, ég panikkaði og hoppaði útúr strætó. Hljóp inní leigubíl, reif gallabuxurnar mínar í látunum!! Fór heim, vakti aumingja Gumma sem var búinn að vaka mest alla nóttina við lærdóm, kippti nýjum buxum með, en fann hvergi passan minn. Því seinast þegar ég kom frá íslandi þá var ég í svo miklu stressi útaf prófinu að ég setti ekki passan í umslagið sem ég er vön að setja hann í. Ég hljóp útí leigubíl og ætla að sjá hvað fólkið á flugvellinum gæti hjálpað mér með... Þegar ég svo kom á flugvöllin í rifnum gallabuxum og taugaáfalli hringdi Gummi í mig og sagðist vera á leiðinni með passan minn.... hvílík hamingju stund!! Ég tékkaði mig inn, kyssti kallinn bless og hljóp eins og fætur toguðu í gegnum flughöfnina þar sem flugvélin beið mín við hlið A15 sem er í terminal lengst í burtu hlið inn allan ganginn og útí horni, ég náði móð og másandi að setjast í sætið og fljúga af stað.
Þegar ég kom svo til Manchester keypti ég miða með lestinni til Sheffield, lestin átti að fara klukkan 8:40, klukkan var 8:20, ég fór í hraðbankan, tók út pening og tók svo liftuna niður á lestarpall en ég held ég hafi farið í gegnum tímazone í liftunni... því þegar ég kom niðrá pallinn var klukkan 8:50 lestin farin og rúmur klukkutími í næstu lest.... ég hélt ég mundi fá taugaáfall svo ég ætlaði að hringja í Berglind svo hún mundi vita hvenær hún ætti að búast við mér en mynt síminn vildi ekki móttaka símanúmerið hennar og ég gat ekki náð í hana... hvílíkt stress... endaði með að hringja til Íslands og lét þau hringja í Berglind!! Ég held ég hafi aldrei verið jafn stressuð í mínu lífi... og aldrei jafn pirruð útí sjálfa mig og akkurat þarna!
Berglind og Örn komu á lestarstöðina og náðu í mig, létu mig borða og slappa af, svo fórum við Berglind heim í herbergið hennar og lögðumst undir sæng og horfðum á OC, eftir það tókum við höndum saman og breyttum í herberginu og náðum í húsgögn og versluðum í matinn og gerðum allt kósí, við vorum að til klukkan 5 um nóttina svo það var annsi langur sólarhringur!
Daginn eftir sýndi Berglind mér skólan sinn sem er hérna hinum megin við götuna, svo fórum við niðrí bæ að kaupa smáhluti sem vanntaði, eins og ruslafötu, óhreynatau, snaga og margt fleira, við fórum saman í klippingu og tókum svo leigubíl heim sem tók langan tíma því á föstudags eftirmiðdögum er bænastund hjá leigubílstjórunum þar sem þeir eru allir útlendingar. En að lokum komumst við heim, hlupum svo strax aftur út því við vorum að fara til Maju (eina íslenska stelpan sem býr hérna... að við höldum) að elda saman og svo fórum við í bíó.
Í dag erum við bara búnar að slappa af, gera huggulegt í kringum okkur og borða pizzu, naglalökkuðum okkur með bleiku naglalakki og erum núna að drekka hvítvín... lífið er gott... að flestu leiti...
Köttur útí mýri sett'upp á sér stýri, út'er ævintýri!..... eða kannski ekki alveg....
To be continued!!

<< Home