Það var rugl gaman á fimmtudaginn, brjálað stuð, alveg hreint klikkað!!! neinei það var bara æðislegt að fara á Nexus (loksins), Gummi var heima á Elbagötunni með vini sína þeir voru nýbúnir að klára verkefni og ég fór með steplunum á Nexus (fimmtudagsbarinn í skólanum) það endaði nú með því að ég og Heiða fundum tvo félaga hans Gumma sem ekki voru á Elbagötunni svo við ákváðum að ferja þá yfir!
Í dag er ofboðslega fallegt veður, kallt en alveg logn og sólin skýn. Við Gummi vöknuðum í morgun og þrifum alla íbúðina hátt og lágt, svo fórum við útí búð og gerðum svo góðverk dagsins... í gærkvöldi fundum við mánaðarkort í strætó og sygeforsikrings kort, svo við rölltum með það til eigandans!!
Í kvöld ætlum við að fá okkur hamborgarahrigg og fínerí og hafa það huggulegt með kertaljós og rólegheit.... kannski maður horfi á annan þáttinn í nýju OC seríunni!!
Á mánudaginn verð ég og 2 aðrir með fyrirlestur um þróun á Elektronikindustrien og eigum líka að kenna tölfræðina á bakvið alla útreikninga.... spennó... eða þannig!!
Annars hef ég bara aldrei neitt mikið að segja... þetta blogg er að verða hálf lummó....

<< Home