miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Það var æðislegt í Århus, við Ásta gerðum allt vitlaust á Fredagsbar, vorum seinastar af svæðinu!! Svo höfðum við það annars bara huggulegt, fórum út að borða, sátum á kaffihúsi og röltum um götur bæjarins. Það gerir ótrúlega mikið úr helginni að fara svona í burtu, mér líður eins og ég hafi verið í viku fríi!!

Gummi er búinn að vera að vinna verefni seinustu tvær vikurnar, það var lítið sofið, en nú er það að verða búið. En svona er þetta bara, ég verð líka að vinna 3 verkefni og tvo fyrilestra næstu tvær vikurnar... mikið fjör og mikið gaman!! ég var einmit 10 tíma í skólanum í dag og er að fara aftur á morgun til að geta verið búin að létta aðeins á okkur, en svo ætlum við að sletta aðeins úr klaufunum annað kvöld, það verður stelpupartý hjá bekkjasystur minni og svo förum við á Nexus (Torsdagsbar) að hitta restina af bekknum

Í gær fór ég á tónleika með Maroon 5... ekkert nema gott um þá að segja!!

Svo er það líka að frétta að Destiny's Child koma að spila í Køben 14. maí, fyrir þá sem hafa áhuga þá fer miðasalan fram á Billetlugen

Annars er nú ekkert mikið búið að gerast síðan seinast.... allavega ekki svo ég muni...

   |