þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Spennandi spennandi.... mikilvægustu forsetkostningar allra tíma er í gangi núna.... hvenær ætli það verði að maður fái að vita úrslitin...?!!

Hey já.... og bara byrjað að gjósa í Grímsvötnum... á meðan það veldur ekki miklum skaða finnst mér þetta ægilega spennandi....

Kennaradeilurnar mínar eru líka leystar, ég er semsagt komin með fastann kennara, hann kenndi mér í dag á mikilli hraðferð til að komast yfir allt sem við erum búin að missa af svo ég ætla ekkert að dæma hvort hann er góður eða slæmur kennari.... held að hann sé samt af betri kantinum.... það er samt verst að hann neitar að nota tölvuna og ég skil ekki orð af því sem hann skrifar á töfluna, vona að það hafi verið svona óskýrt vegna þess hvað hann var að drífa sig mikið!!

J-dagurinn er á föstudaginn, fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá kemur hér stutt útskýring: J-dag er mikill hátíðisdagur Dana því þá kemur Jólabjórinn út.... þið getið nú getið ykkur til um það hvernig stemmarinn í bænum verður!!!

Ég var að koma úr klippingu... og er að fara út að skokka... ætli maður skelli sér kannski bara í ljós á eftir, svona til að fullkomna þetta... aldrei að vita!

   |