sunnudagur, október 31, 2004

Jæja þá er stóra stundin runnin upp!!! hljómsveitin SUNGUNS komin með tvö lög inná netið, dæmi nú hver fyrir sig en ég verð bara að segja að mér finnst þetta drullugott hjá þeim stúlkunum!!!! smelltu hér til að hlusta.

Manni dugar ekki djammið í Köben svo ég ætla að skella mér til Århus næstu helgi til að fara á hallóvín ball... ég held samt kannski frekar að stóri tilgangurinn með heimsókninni sé að heimsækja hana Ástu okkar. Fyrir þá sem ekki vita er hún að læra arkitektinn í Århus.

Ég er nú soldið farinn að hlakka til jóla... má það ekki?!... það er kominn nóvember, skrítið að heyra alla segja að það sé kominn vetur á íslandi, hérna er bara haust... fallegt haustveður... og ég er orðin óþolinmóð, langar að komast í almennilegt vetrar/jólaskap, hélt ég mundi aldrei segja þetta en ég hlakka til að það komi frost og snjór... það er svo kósí!!!

....ER ÉG AÐ KLIKKAST!!!

   |