Núna er Gummi flúinn til íslandsins.... ég er komin í helgarfrí, þriggja daga helgi, yndislegt!! í gær fórum við í matarboð til Sigrúnar (frænka Gumma)og Hannesar foreldrar hennar voru í heimsókn, borðuðum frábæran kjúklingarétt og höfðum það huggulegt, Ingibjörg (frænka Gumma) og Bernard komu líka, Ingibjörg er komin með góða bumbu :)svo vorum við keyrð heim á nýja kagganum þeirra Sigrúnar og Hannesar, það var upplifelsi útaf fyrir sig að láta dekra svona við sig!!
Á morgun er ég að fara niðrá strönd á 17. júní hátíð, við fáum ísl. pulsur, nammi og margt margt fleira! svo er 17. júní dansleikur um kvöldið með Miljónamæringunum og Páli Óskari og eithvað sollis.... svaka stuð!
En núna er ég að horfa á boltann Danmark-Búlgaría... maður verður að vera inní málum!!

<< Home