Þá er Hildigunnur farin heim, það var æðislegt að fá hana í heimsókn, hún er búin að vera hérna frá 4. júní, kom hingað frá Fraklandi á leið sinni til Íslands. Við byrjuðum á því að djamma.... feitt.... og svo var bara ekkert gert, slappað af og safnað orku... jú... við fórum í nýja rússíbanan í tívolí, sátum fremst, það var alveg geggjað!!
Núna er Gummi búinn að gera verkefnið sem hann á að skila á morgun, og þá er bara próf á mánudaginn, tölvupróf. Og svo fer hann bara til íslands 18. júní.
Annars er mest lítið að frétta, nema að við höfum það gott!

<< Home