föstudagur, júní 04, 2004

Jábs, allt gengur sinn vanagang. Ég var í vinnuni í dag, nóg að gera þar. Svo klukkan 17 fór ég niður á pósthús að ná í Roskilde miðan minn... já já Ingibjörg er að fara á Roskilde festival!!! Ég verslaði í matinn, tók til og eldaði mér kvöldmat, nú sit ég inní stofu með tölvuna í fanginu og horfi á sjónvarpið, ljúft líf! Gummi er búinn að vera í allan dag heima hjá Adam skólafélaga sínum, þeir eru þrír búnir að vera að vinna verkefni en mér grunar að það sé frekar komið útí bjórdrykkju en hitt!! Magga og Bjarni eru á leiðinni hingað til að stytta mér stundirnar þangað til Hildigunnur kemur, um miðnætti.
Svo þangað til næst, adíós

   |