föstudagur, apríl 23, 2004

Jæja þá er komin ró í kofann og kominn tími til að byrja aftur að skrifa fréttir!!
Þannig er nefninlega mál með vexti að á fimmtudainn í seinustu viku þá sendi ég henni móður minni sms um hversu gott veður væri og örfáum mínútum seinna hringir hún og segist vera búin að bóka, svo Berglind, Edda og Mamma komu galvaskar á algjöru flippi í heimsókn á föstudagskvöldið, ég átti frí um helgina svo við vorum saman úti í góðaveðrinu, fórum niður á strönd, löbbuðum í almenningsgörðum og margt margt fleira!! Það var ekkert smá fjör!
Núna erum við Gummi bara tvö, Gummi er búinn að bjóða mér á eithvað "surprise date" í kvöld... ég má ekkert vita og er að deyja úr forvitni!
Annars gengur allt vel, Gummi er að fá góðar viðtökur í skólanum og kennarar farnir að biðja hann um að fá að nota verkefnin hans sem kennsluefni! Ég er bara að vinna, hlakka til að fá 27 kassa af nýjum sumarfötum í næstu viku.
Við kíktum á Torsdagsbar í gær það var ekkert smá fjör. Magga, Bjarni og ég fórum bara snemma heim en Gummi varð áfram með vinum sínum úr skólanum. Hann átti það líka alveg inni að skvetta aðeins úr klaufunum, búinn að vera ekkert smá duglegur alla vikuna.
Jæja segjum þetta nóg í bili

   |