sunnudagur, maí 30, 2004

Þessi helgi er búin að vera alveg frábær!! Við ákváðum að hittast í gær heima hjá Möggu og Bjarna í rauðvíns-sötur, og svo bara sjá til hvar það mundi enda... það fór nú betur en við hefðum getað ímyndað okkur. Þegar við voruum búin að koma okkur niðrí bæ á leiðinni á klúbbinn og sáum þessa líka allsvakalegu röð fyrir utan alla skemmtistaði, ákáðum við spontant að skella bara upp okkar eigin stranda-party... og það gerðum við!! Ég, Magga og Bjarni fórum heim til þeirra að náðum í bjórkassa og Heiða og Gummi fóru í 7-11 að kaupa pulsur, svo var komið við heima og náð í grill og teppi og haldið niður á strönd!
Það verður nú að segjast að þetta heppnaðist annsi vel! við skulum hafa það á hreinu að það var kveikt bál ;), grillaðar pulsur, veiddar marglittur, drukkinn bjór og horft á sólina koma upp... hvílíkt og annað eins!! um rúmlega fimm komum við öll heim á Elbagade þar var búið um rúm og allir fóru að sofa nema Gummi og Bjarni þeir urða að taka eina skák fyrst... þeir eru nú ekki alveg heilir!!! Í morgun pöntuðum við okkur svo Dominos pizzu og svo fórum við í bíó á Troya... ein stór fjölskylda!!

   |