þriðjudagur, maí 18, 2004

JÆJA!!! kominn tími til að láta heyra í sér.... búið að vera soldið mikið um að vera undanfarið svo ég hef ekki getað sest niður og skrifað.
Ég fór til Íslands um daginn það var ekkert smá gaman svona aðeins að kíkja! Ég fór í kvöldmat til Ömmu og Afa hans Gumma og hitti stelpurnar, fór að djammið með Berglind og fékk fisk hjá mömmu (að minni ósk) og til að gera gott betra þá komu Steinunn og Daníel til að snæða með okkur. Ég er bara mjög sátt!
Strax á föstudaginn kom Tanja svo í heimsókn til okkar. Það var slett ærlega úr klaufunum! og svo var haldið eithvað það villtasta Eurovision Party ever!
Núna erum við Gummi bæði í afslöppun fyrir framan sjónvarpið, Gummi var í fyrsta prófinu sínu í dag... munlegu, og það var talning í búðinni hjá mér langt fram á kvöld.
Ég á frí á fimmtudaginn og föstudaginn, ætla að nota það til að slappa af, fyrir komandi heimsóknir!

   |