Þá er maður kominn heim úr vinnuni, það er opið til klukkan átta alla þessa viku vegna þess að Magasin á 136 ára afmæli, þetta er alveg fáránlegt, á mánudainn opnuðu þeir líka klukkan átta um morguninn. Það sem er fáránlegast við þetta er að þeir auglýsa ekkert þetta afmæli sitt svo það kemur enginn, og þessi tilboð sem eru eru bara ekkert spes!! þeir eiga ekki efni á að ráða starfsfólk og svo virðast þeir geta haft endalaust opið þrátt fyrir að þeir vita fyrirfram að það koma engir kúnnar!!!! HÁLFVITAR!!! ég held ég gæti skrifað langa skýrslu um þau mistök sem Magasin gerir í sínum rekstri.... ég er nú ekkert hissa að þeir eru að fara á hausinn!
En nóg um það. Við erum búin að vera ofboðslega upptekin við að hafa það gott, vera úti í sólinni, elda góðan mat á kvöldin og vera með vinum okkar, ég er ofboðslega sátt við vorið! það er svo þægilegt að það er ekki allt of gott veður svo maður er ekki með samviskubit að vera lokaður inni í vinnuni allan daginn en samt er það gott veður að þegar maður fer út þá er maður bara í þunnum jakka.... yndislegt.
Nú styttist í að ég fer til Íslands!! Gummi var geðveikt hneikslaður á mér þegar ég sagðist ekki ætla að fara í bláa lónið, ekki ætla á Gullfoss og Geysi og ekki að skoða Jökulsálónið!! hann spurði mig þá hvað í ósköpunum ég væri að fara að gera til íslands, hvað ætlaði ég eiginlega að sjá!!! hann er nú bara eithvað ruglaður!! ég er nátlega bara að koma til að hitta vini og ættingja... ég ætla ekki að gera neitt annað vesen ;)

<< Home