laugardagur, maí 29, 2004

....... Þá er komið að því..... Ingibjörgin skrifar á bloggið sitt!!! Það er nú margt búið að gerast.... en því miður er flest af því ekki frásögufærandi það er allavega bannað innan 20 ára!! Í stuttu máli: Helena og Linda tóku Köben með trompi! Þær voru hérna frá laugardegi til fimmtudags, töpuðu sér í búðum, fóru í Tívolí ;) og á Metallica tónleika... minnst var gert af því að sofa.
Núna erum við hjúin aftur ein í kotinu og höfum það gott, næsta vika verður frábær þar sem ég verð bara að vinna 3 daga af 6 vinnudögum... vegna helgidaga og þjóðhátíðardags.
Gummi er í prófum, er búinn með tvö verstu... munnlegu prófin og stóð sig með prýði, bara eitt próf eftir og verkefni, eithvað sem hann á alveg eftir að massa.

   |