Var að vinna til klukkan 17 í dag, veðrið var yndislegt, ekki ský á himni og mikill hiti!! Ég hitti Möggu og Bjarna í einn bjór úti í sólinni en svo þurfti Bjarni að fara heim... svo við Magga bættum nokkrum bjórum í fínu bjórbumbuna okkar, svo þegar sólin beilaði á okkur fórum við og fengum okkur gómsæta samloku, borðuðum þangað til við sprungum næstum því .... kabúm!!! Svo fórum við í bíó og Monalisa smile, maður verður að nota tækifærið og fara á stelpu-mynd þegar maður er laus við kallana hehehehe!! Rosa gaman!!
Á morgun er ég í fríi, ætla niðrí skóla að leiðrétta misskilning um að þeim vanti stúdentsprófið mitt... eða þið vitið.... láta þá hafa nýtt þar sem hundurinn þeirra hefur étið hitt eintakið :) Svo ætla ég að fara í sumar fótsnyrtinguna og snyrtistofunni minni. Eftir það verður tekin löng sólbaðsferð... bara liggja í sólinni allan daginn.... mmmmmmm!!!!!

<< Home