Jæja þá er komið að því.... ég fer að blogga aftur eftir viku páskafrí.
Steinunn og Daníel eru búin að vera hjá okkur í viku, það er búið að vera alveg frábært, við erum búin að hafa það virkilega huggulegt um páskana. Borða góðan mat og gera skemmtilega hluti, við fórum m.a. í Bakken (skemmtigarðurinn í Klampenborg), við keyrðum um á hestvagni og röltum í Frederiksberg Have, við sátum á Nyhavn í sólinni og horfðum á mannlífið, við fórum í Fields (stóra verslunarmiðstöðin).
Annars var ég að vinna svo Gummi, Steinunn og Daníel urða að gera sér glaða daga án mín, þau fóru á Dragør og löbbuðu um hverfið okkar niður á strönd og margt margt fleira.
Ég fór á Suga Babes tónleika á Stóra Vega með Karen, vinkona mín úr vinnunni, það var eithvað það magnaðasta sem ég hef gert í langan tíma, við stóðum alveg fremst allan tíman, þetta voru tónleikar sem gleymast aldrei!
Við Gummi fengum samanlagt 5 páskaegg, fjögur stykki númer 4 og eitt númer 7, nóg af sókkulaði til á þessu heimili. Svo fylltu tengdó líka nammiskúffuna okkar svo nú munum við sitja heima næstu vikurnar í sykursjokki.
Magga og Bjarni fluttu hingað fyrir tæpri viku, þau eru búin að búa í tómri íbúð síðan þá, sitja á kassanum undan sjónvarpinu og horfa á sjónvarpið sitt... eftir því sem ég best veit þá líst þeim bara vel á þetta allt saman. Við erum búin að fara út á lífið og hanga á kaffihúsum, það er búið að vera rosa stuð!
Núna loksins er Shop Amok búið, ég hef borað bleika bolnum lengst ofan í skáp og þið skuluð ekki búast við að sjá mig í bleiku aftur!
Vona að allir hafi haft góða páska, kveðjur frá Kaupmannahöfninni!

<< Home