fimmtudagur, janúar 11, 2007

Manni ber víst skylda til að láta heyra í sér innámilli...
Ég er komin aftur heim, Ísland var mjög gott.
Fór á árshátíð með vinunum sem var vel heppnuð a la Tönju skipulag.
Hitti alla fjölskylduna og lítil frænsystkyn sem ég hef ekki séð mjög lengi, bæði hjá Eddu og Baldvin.
Fór loksins í heimsókn til Helenu og Davíðs í nýja húsið... sem kannski er ekki svo nýtt lengur...
Fór í Áramótapartýið mikla og var seinust út eins og öll hin 7 árin.
Fór í bústað með vinkonunum.
Hélt litlu jólin í Brautarholti með Steinunni, Daníel og Rúnu. Þar sá ég fólk borða rjúpur í fyrsta skipti... en ég fékk að borða lambakjöt og fékk svo möndlugjöfina.
Heimsótti Birtu Guðrúnu og Heiðu... loksins!!
Fór á eitt týpískt Íslenskt djamm...
Hékk með mömmu og pabba, Snorra Frey og Berglind
Heimsótti Sigrúnu, Brendan og Tómas Ían
Þetta og margt margt fleira náðum við Gummi að gera, en svona er þetta, maður getur ekki gert allt... hitti restina næst...
Gummi varð eftir á Íslandi, hann fékk vinnu í 1 mánuð og veðrur þar þangað til í byrjun febrúar.
Svo ég er ein og yfirgefin með uppþornað jólatré í danaveldi. En það væsir ekki um mig, ég hef nóg að gera, vinna, skóli og skiptinemar...
jæja, þetta er orðið gott í bili
Nýársknús

   |