þriðjudagur, desember 12, 2006

Jæja jæja....
Aldrei hef ég verið jafn afslöppuð í prófum, það er ekki vottur af stressi. Á föstudaginn fór ég út með vinum og við enduðum með að taka yfir Írska Pöbbinn þar sem við fylltum staðin (skiptinemarnir). Svo á Laugardaginn fórum við á tónleika, það er music festival í gangi hérna, svo við fórum á svæðið og það var endalaust af góðri tónlist!! Svæðið var ekkert smá flott, það var veitingar skemma sem var búið að skreyta og hengja upp kristal ljósakrónur og ég veit ekki hvað... frakkarnir eiga það til að tapa sér í skreytingum!! En það er gaman að því. Kvöldið endaði með rossalegum tónleikum með Keiser Chiefs, þar sem við börðumst fyrir lífi okkar í krádinu og enduðum með að bera eina vinkonum mína heim og draga aðra í burtu þar sem hún lenti í stelpuslagsmálum... heldur betur svakalegir tónleikar!!!
Núna er ég búin í 5 prófum og aðeins eitt eftir, á fimmtudaginn, svo ég nota daginn í dag og á morgun í að pakka og ganga frá málum. Ég held líka að við séum að fara eithvað út annað kvöld, úff púff, nóg að gera, en ekkert stress.
Hér er rigning ALLA daga, svo ég hlakka til að komast til DK og kannski ef ég er heppinn, fá smá jólasnjó til að koma mér í jólaskap... ekki veitir af.
jæja, ég gleymdi snúrunni til að setja myndir inná tölvuna heima í DK svo það verða eingar myndir fyrr en ég kem aftur til dk næstu helgi.... pældíðí næstu helgi verð ég komin heim... Gummi á eftir að fá svo mikið leið á mér því ég ætla ekki að sleppa honum úr augnsýn ;)
Bæsós

   |