þriðjudagur, desember 26, 2006

Jólin eru búin að vera ofboðslega hátíðleg og notaleg hérna á Elbagötunni.

Við Gummi elduðum besta jólamat sem hugsast getur; önd og meðlæti, heimatilbúinn ís og möndlugraut ásamt ýmsu öðru góðgæti. Við eyddum aðfangadagskvöldi í að borða þessar kræsingar, opna pakka, lesa jólakort og horfa á hinar ýmsu messur í sjónvarpinu, okkur tókst að heyra heims um ból sungið á mörgum tungumálum, horfðum á danska messu fyrr um daginn, hlustuðum á íslenska messu í útvarpinu (gegnum tölvuna), þýska messu á þýsku stöðinni 0g enduðum svo á að horfa á Páfan messa. Rosa gaman að sjá hinar ýmsu serimóníur og kirkjukóra...

Jóladagur var svo tekinn mjög rólega, heitt súkkulaði, rúnstykki, lestur góðrar bókar, Johnny Cash bíómynd og dagurinn var svo toppaður með æðislegu jólaboði þar sem bæði var spilað bingó/bangó og trivial. Og borðað allt of mikið!!
Gleðin heldur svo áfram næstu tvo daga; afslöppun, heimsóknir og góður matur, við búumst nú við að slíkt hið sama taki við þegar við skellum okkur svo til Íslands á miðvikudagskvöldið.

Ég setti inn alveg fult af myndum...

Hátíðarkveðjur

   |