fimmtudagur, desember 21, 2006

Jólastemmarinn er í hámarki... eða allavega ætti að vera í hámarki, mér finnst soldið erfit að komast í jólaskap þegar það er enginn snjór og fólk skreytir ekki húsin sín. Gummi er farinn að spila heims um ból á gítarinn... Það finnst mér æðislegt, hjálpar allavega með stemmarann.

Ég hef verið að horfa á Bláma og Ísafold á RÚV, þau eru svo fruntalega skemmtileg. Svo er ég staðráðin í því að vinna 1.000.000 á jóladagatalið mitt

Ég á hrikalega erfit með að kaupa seinustu jólagjöfina, þ.e.a.s. handa Gumma, það er nóg að gera í vinnunni, við eigum eftir að kaupa inn í matinn, strauja sængurverin, kaupa jólatré og þrífa. Ætli þetta smelli ekki bara allt saman á seinustu stundu hjá okkur.

Við höldum aðfangadagskvöld bara tvö, borðum önd og heimatilbúinn ís, en förum svo í jólaboð á jóladag... það verður alveg nóg að gera hjá okkur yfir jólin svo það eru eingar líkur á að okkur leiðist, eins og svo margir hafa áhyggjur af... ég meina, hvernig er hægt að leiðast um jólin, maður er með bækur og spil og hvort annað...

Núna er bara vika í að ég verð á Íslandinu svo það er nóg til að hlakka til.

Jólakossar úr Höbninni
Ingibjörg

   |