fimmtudagur, desember 07, 2006

Hóhóhó, jóló jóló... ég verð að fara að gera eithvað jólalegt til að koma mér í jólaskap!! Ég vaknaði í morgun og upgötvaði að það er 7. desember og ég er ekki byrjuð að jólaskapast!! kannski ég reyni að fara á jólamarkað um helgina eða eithvað.

Það var nú ekki alslæmt að koma aftur til fraklands, það lét mér líða aðeins betur þegar ég mætti í skólan og vinir föðmuðu mann og sögðu að þeir hafi saknað manns... það verður ansi erfit þegar allir fara í sithvora áttina, allir með stór plön um að heimsækja alla en það verður sko ekki staðreyndin, sérstaklega þegar mitt áramótaheit verður að ferðast minna.

Ég er búin í tveimur prófum French Language og Marketing Communication, bæði gengu vel. Á morgun er svo French Culture. Á mánudag og þriðjudag eru svo tvö próf í Consumer Behaviour og á fimmtudaginn eftir viku Project Management, easy peasy!! Þá get ég loksins andað jólin inn, og flutt frá Frakkalandi :)

Jójójó Jóló Póló

   |