fimmtudagur, desember 14, 2006

Þá er komið að því 45 mínútur í seinasta prófið. Ég skráði mig samt úr skólanum í gær... svo opinberlega er ég búin. Þetta er endalaus pappírsvinna. Í allan morgun er ég búin að vera að stússast í að fá trygginguna mína aftur fyrir herbergið sem ég leigi.
Og auðvitað svindla þeir á mér, ég fékk 3 ógeðsleg teppi með herberginu mínu sem ég er búin að geyma uppí skáp þar sem ég gat ekki hugsað mér að nota þau. Og viti menn, núna fundu þau blett í einu af þeim og ég þurfti að borga fyrir nýtt teppi!!! Ég nennti ekki að berjast fyrir rétti mínum þar sem þetta voru bara 5 evrur.... en mér er alveg sama, þetta var dropinn sem fyllti mælinn... ég er búin að fá mig fullsadda af frökkum!!!

Svo í kvöld er ég að fara til Abby við ætlum að elda. Ég fór út í gær og kvaddi flesta, vissi ekki hvernig ég átti að láta þegar tvær vinkonurnar fóru að háskæla... ég meina, átti ég að kreista fram tár líka... ætli þetta sé ekki partur af menningamismun, eða eru þær bara væmnar... ég er mikið búin að pæla í þessu.

Gummi segir að það séum 8% líkur á að það verði hvít jól í Danmörku... ég vona að við fáum smá snjó bara svona fyrir stemmarann...verum bara bjartsýn, allt getur gerst þegar andi jólanna tekur yfir.

Önnur úber góð frétt er að 7/11 er að opna á horninu þar sem videoleigan var.... þið sem þekkið til vitið hvaða þægindi það hefur í för með sér!!!

Annars blogga ég næst frá Höbninni, tek lestina í fyrramálið kl. 6:10 beint útá flugvöll... svo ekkert meira að ferðast í metróum og lestum Parísarborgar!! Svo verð ég komin heim seinnipart dags... það er julefrokost hjá árgangnum mínum á föstudagskvöldið og stórafmæli hjá Rakel á laugardaginn plús að ég verð að vinna alla helgina... en það besta við þetta allt saman er að prófin verða búin og ég get notið þess!!!

Jólakveðjur frá FrakkaLandi
Ingibjörgin

   |