fimmtudagur, janúar 18, 2007

Jæja þá er ég komin uppí rúm, best að gera enn eina tilraunina til að sofa... gengur ekki allt of vel.
Í þetta skiptið er ég í ullarsokkum og rúllukragapeysu... ofninn í svefnherberginu virkar ekki... eða ég kann ekki á hann, svona er maður vængbrotinn þegar hann Gummi minn er ekki hjá mér.
Í kvöld gerðust þau undur og stórmerki að ég opnaði mér myspace síðu... skil ekki enn hvað þessi síða gengur útá... en þetta er semsagt tilraun til að öðlast þann skilning.
Svo var ég með smá tilraunarstarfsemi... allt getur gerst þegar manni leiðist!!


Það eru greinilega allt of mikið af stjörnum þarna úti sem eru að reyna að líkjast systur minni!!
Og snorri Freyr er auðvitað eingum líkur:

   |