sunnudagur, janúar 21, 2007

Þessi helgi er búin að vera alveg ágæt.
Ég náði í Högna skiptinema útá flugvöll á föstudaginn og kom honum heim til sín.
Ég fór á útsölur en fann bara eina skólapeysu... maður hefði haldið að eftir að hafa ekki keypt föt í svona langan tíma, mundi ég missa mig á útsölunum... en svo var ekki!!
Á laugardaginn þvoði ég af rúmunum, fyllti 5 þvottavélar útá þvottastöð!! Svo nú er allt orðið hreint og tilbúið fyrir ykkur að koma í heimsókn!!
Í gærkvöld fór ég svo í þrítugsafmælið hans Alla, það var brjálað stuð, en ég fór samt bara snemma heim og tók því rólega.
Í dag er ég búin að vera í leti og að njóta þess að vera í helgarfríi, horfa á VM í handbolta og þrífa.
Knús og kram
Ingibjörg

   |