Það er sossum ekkert róktækt búið að gerast síðan síðast, en þar sem fólk byrjar að kvarta ef ég skrifa ekki reglulega, þá geri ég hérmed mitt besta.
Maður er auðvitað bara á fullu í skólanum, á morgun er vejledermøde med kannaranum þar sem við fáum smá feedback um hvort verkefnið okkar sé á réttri leið.
Það er kominn sumartími, á sunnudaginn fluttum við klukkana og strax sama dag kom sumarveður!! Búin að hjóla um allan bæ í góða veðrinu, í dag var 13 stiga hiti!!
Í kvöld fórum við á húsfélagsfund, þar var Gummi kosinn sem meðlimur
í hússtjórn, svo hann fær að taka þátt í stóru verkefni, þ.e. annaðhvort að skipta um þak eða byggja þakíbúðir!! Eftir fundinn fórum við svon út að borða með Rakel á Laundromat, það var rosa huggó.
Ég er komin með smá fiðring, er að fara í heimsókn til Berglindar í Prag 12.-18. apríl... það er sko ekki svo langt þangað til!! En fyrst þarf ég að plögga alvöru páskaeggjum til að hafa með til hennar!!
Já páskarnir framundan... ekkert nema páskagul gleði!!

<< Home