fimmtudagur, mars 30, 2006

Hvað brennur?

Huggulegt að vakna við þær fréttir að maður á að drífa sig út það sé kviknað í. Íbúðin var að fyllast af reyk við vöktum Helga Pál, heimalinginn okkar, gripum tölvur og skartgripaskrín og hlupum út.
Slökkvuliðið var mætt á svæðið og ljóst var að það hafði kveiknað í gömlum olíutanki, þegar verið var að fjarlægja hann úr kjallaranum.
Eftir að slökkvuliðið hafði sinnt starfi sínu, slökt eldin og var í gang með að ræsta reykinn út, fengum við að fara inní íbúðina okkar, hún var full af reyk svo við erum búin að vera með alla glugga oppna.
Þrátt fyrir að veðrið sé orðið betra en það hefur verið, sit ég núna gegnköld undir sæng. Það eru menn búnir að koma og meta skaðan og það virðist vera að við vorum heppin, það var allt svart inní íbúðinni við hliðina á okkur og fleiri íbúðum, en við virðumst sleppa með bara vonda lykt sem hægt er að lofta út.

Gummi er búinn að setja inn myndir af dramanu í morgun á bloggið sitt, íbúðin okkar er á jarðhæð lengst til hægri, þ.e.a.s. hægra megin við hurðina.

Það eru aldeilis lætin, og svo virðist Berglind vera að fara að lenda í flóðum í Prag...

dramadrama

   |