Jább, ég er búin að kaupa mér far til Íslands, fer út kvöldið 26. maí og fer heim 13. júní, þetta verður lengsta dvöl mín á íslandi síðan ég flutti út!! Snorri freyr útskrifast 27. maí svo ég lendi beint í veislu.
Svo eru nokrir hlutir á listanum yfir things to do:
- Fara á bæjarins beztu
- Fara í heimsókn í Brautarholt
- Fíflast með Heiðu
- Hitta Eddu og fá ferðasöguna!!
- Hitta "the gang"
- Fara í kringluna og versla tax free... djók :)
- Vera í dekri hjá mömmu og pabba
- Fá mér bragðaref
Þetta eru hlutirnir sem ég verð að gera, svo eru fullt af öðurum hlutum sem ég hef tíma til að gera líka, svo ekki vera feimin að koma með tillögur eða forslag eins og við köllum það hérna í Danaveldinu. Svo ætla ég víst líka að vinna smá, það eru jú alltaf fullt af hlutum sem þarf að plögga.
Gummi verður í prófunum sínum þarna á meðan ég verð á íslandi, svo þegar ég kem til baka held ég svei mér þá að hann sé bara að verða búinn með þetta allt saman!! Ég er aftur á móti að fara í próf 21. eða 22. júní.... bögg!!

<< Home