Nú eru góðir tímar!!
Seinasta prófið í bili var í morgun, tölfræði, gekk bærilega. Búin að þrífa skrifstofuna hátt og lágt, eithvað sem ÞURFTI að gerast!! svo núna er það bara lesiles fyrir fjármálafræðiverkefnið sem ég og bekkjarbróðir minn erum að fara að skrifa, um fjandsamlegar yfirtökur... spennó!!
Um helgina förum við Gummi svo til Sheffield að heimsækja Berglind og Mæju, við fáum að gista á hótel Mæju, Herbergisfélagi hennar er svo góð að lána okkur herbergið sitt á meðan hún er í burtu... hlakka ekkert smá til. Er eithvað búin að heyra um að Berglind sé að plana svaka fjörhelgi.
Núna er Edda komin til Kanada, vona að hún njóti lífsins.
Heiða vinkona tilkynnti um daginn að hún væri búin að gera drastiskar breytingar á hárinu sínu. En hún svíkur mig enn um að senda mynd af sér.... ég skora því á þig Heiða!!
Síjúleiteralígeiter

<< Home