Eftir ítrekaðar áskorannir frá Heiðu vinkonu á íslandi kemur eftirfarandi pistill:
Þá er komið nýtt ár með nýjum væntingum og vonum og slatta af þessu gamla líka.
Ég fór í Julefrokost með beknum 5. jan, þar var borðaður kínverskur matur (frekar spes fyrir julefrokost) og haft gaman langt fram á kvöld. Svo fór ég á djammið með Elvu, Öglu og Hrefnu á laugardaginn var... svo nú hef ég það á samviskunni ef Elvu gengur illá á prófinu 18. jan!!
Það er alltaf ágætt að lifta sér upp. En ég held það sé komið að pásu í slíku gamanni. Nú tekur alvaran við.
Skólinn er aftur kominn á fult og rúmlega það. Ég fór í próf 5. janúar sem gekk bærilega, fékk einkunn úr Statistik prófinu sem ég fór í 20. des og það gekk bara fínt. Er að undirbúa mig fyrir síðasta Statistik prófið 23. jan og svo í sömu viku á ég að verja Ekstern Regnskab verkefnið mitt ásamt því að Opponera annað verkefni. Svo það er rosa fjör á minni.
Ég er byrjuð í ræktinni aftur af fullum krafti, það er alltaf góð tilfinning.
Í búðinni er ég búin að vera að ráða eftir allar þessar "rekingar" :/ Í dag réð ég Karen sem vann með mér í French Connection, og á laugardaginn byrjar ný morgunmanneskja sem heitir Regína hún er íslensk og er í söngnámi hérna úti. Svo þetta er allt að smella saman.
Nú vantar mér bara einn starfsmann sem getur verið tvo eftirmiðdaga á viku, endilega sláið á þráðinn ef áhugi er fyrir hendi (eða ef þið þekki einhvern) .... mín bara farin að auglýsa !!! og ég sem var búin að lofa að vera skemmtileg....
Myndirnar frá áramótunum gleymdust í tölvunni á íslandi svo það verður smá bið í að þær verði opinberaðar. En bara takk æðislega fyrir frábær áramót!! það var gaman að hitta ykkur öll þó stutt hafi verið!!
Over and Out

<< Home