sunnudagur, desember 04, 2005

Þessa dagana eiga margir afmæli; mamma, Hans og Annabella áttu afmæli í gær, Viðar í dag, Britney Spears á föstudaginn var og Jesúsbarnið eftir nákvæmlega 20 daga!! Innilega til hamingju með afmælið allir saman!
Gummi heldur áfram að baka og baka, hann sér samt mikið eftir nóa-konsúm súkkulaðinu sínu sem hann notar við baksturinn, en hann fær nú fljótlega nýja sendingu ;)



Í dag átti ég frí frá vinnunni, og hvað geri ég... jú auðvitað fer ég í vinnuna :/ ég held ég sé að bilast!! en það var mjög huggulegt samt, þrældi Anniku út og lét hana skreyta skiltið okkar, á meðan ég spókaði mig uppi í búðinni í nýju draktinni minni :)




Hér fylgja nokrar myndir af deginum sem leið.
Elva er svo að koma í kvöldmat og vera með í julehygge hérna á Elbagade i kvöld.
Knús og kossar til ykkar allra!

   |