Það er kominn vetur!! Snjór og hrikalegur kuldi!! Umferðin er stífluð á flestum stöðum, en ljósið í myrkrinu er skírn nýja prinsins á morgun, það ríkir mikil tilhlökkun og spenna yfir því hvað hann á að heita. Gummi þykist vera með þetta á hreinu: Hans Christian á hann að heita þar sem hann er fæddur á afmælisári þjóðarhetjunnar þeirra Hans Christian Andersen.
Ég er búin að verja og opponere í Ekstern regnskab, það gekk vel. Ég fer svo á mánudaginn í Statistik (tölfræði) próf, sem verður ekki jafn mikil gleði, en það er gott að fá það fag útúr myndinni. Svo ég geti farið að einbeita mér að fögunum sem er meira spennandi. Þessi helgi fer semsagt í að leysa tölfræðiverkefni.... jei!!
Við Gummi erum búin að kveikja á kertum um alla íbúð og við kveiktum á bakaraofninum til að hljýja okkur, það eru nefninlega allir að kynda svo mikið að ofnarnir verða ekki heitir og þar að leiðandi er skítakulti hérna í íbúðinni. En þetta er allt saman að lagast, það er jú svo kósý að kúra undir teppi með fullt af kertum, í skammdegismyrkrinu og borða eplaskífur og drekka heitt kakó (afgangar frá jólunum).
Gummi er inní eldhúsi að elda kalkúnabringur og eithvað fínerí handa mér, það er nú meira hvað hann dekrar við mig!! Hann var einmitt í prófi á fimmtudaginn og er að fara aftur í próf á fimmtudaginn kemur, hann er líka byrjaður á Bachelor ritgerðinni sinni, svo það er nóg að gera hjá honum.
Later

<< Home