Maður er farinn að blogga daglega hérna, enda er það ágætis afsökun fyrir að taka pásu frá verkefnaskrifum. Ég er alveg föst núna, kemmst ekkert áfram, ég meina hvað er hægt að fara mikið ofaní "regnskabsmæssig behandling af indkomst skatter" 40 bls. verkefni og við eigum að gera analyse á einhverju sem er voðalega lítið varið í!! En svo er þetta víst að vera í skóla, maður fær sjaldnast að gera eithvað skemmtileg ;)
Í gær fórum við á jólatónleika Stöku, sem er kór sem innilheldur hátt hlutfall af íslendingum, enda enduðu tónleikarnir á heims um ból á íslensku. Það var mjög hátíðlegt að fara á þessa tónleika, og þeir voru rosalega vel útfærðir og skemmtilegir. Við fórum nú í þeirri von um að sjá Ingibjörgu frænku hans Gumma á sviði. En svo varð ekki, hún er að fara að skila lokaverkefni í Arkitektúrnum og hafði víst ekki tíma þetta skiptið. Regína góðkunningi okkar var þó að syngja, og það er bara eitt sem er hægt að segje; vá!! jamm hún kann allavega að syngja, enda var hún með einsöng. Þrátt fyrir að Ingibjörg var ekki að syngja með þá sá hún um veitingarna í jónshúsi eftir tónleikana, það var mjög huggulegt. Eftir allt fjörið fórum við Gummi svo bara í göngutúr og svo heim. Alveg ágætis föstudagskvöld.


Í dag er ég að reyna að vinna í verkefninu og Gummi er að mála inní eldhúsi, við urðum nefninlega fyrir vatnsskemmdum, það sprakk rör uppi hjá nágrannanum, við urðum að taka eldhússkápana niður á meðan þetta þornaði, svo nú er kominn tími á að gera eldhúsið aftur að eldhúsi.


<< Home