Ég hef velt því mikið fyrir mér hvers vegna enginn kommentar á síðuna mína. Ég hef nefninlega soldið á tilfinningu að ef fólk kommentar ekki, getur efni færslunar ekki verið mjög spennandi. Gummi benti mér kurteisislega á að það gæti verið vegna þess að ég sé ekki nógu skemmtileg, þetta tók ég fyllilega til mín og þessvegna hef ég ákveðið að reyna að vera örlítið skemmtilegri en ég hef verið, ég get ekki lofað að ég verði neitt ofboðslega fyndin en ég skal reyna að skrifa ekki um próf, vinnuálag eða vitlausa Dani í næstu 5 færslum, það ætti kannski að bæta þetta aðeins. Það sorglega er þó að þessi þrjú efni eru alsráðandi í lífi mínu þessa dagana.
Hér kemur 1. tilraun:
Í dag erum við Gummi búin að vera saman í 4,5 ár.... það er alls ekki leiðinleg! Í tilefni þess ætlum við að fara út í jólagjafainnkaupin.... jei!!

<< Home