laugardagur, desember 17, 2005

Það er kveikt á dagatals kertinu og aðventukransinum sem Gummi föndraði svo listilega.
Gummi situr við hliðina á mér með gítarinn sinn og er að æfa sig.
Við erum með jólatónleika í sjónvarpinu.
Við erum að drekka kalda mjólk og borða lagkökuna sem amma hans Gumma sendi okkur.
Ég sit með tölvuna í fanginu og er farin að fá hugmynd um hvað Statistk gengur útá.

Svona til að gefa ykkur hugmynd um hvernig laugardagskvöld á Elbagötu er.

   |