Gærdagurinn var viðburðarmikill, ég byrjaði daginn á því að fara niðrí búð kl. 8 til að hafa stjórn á gaurunum sem voru að koma að setja upp skiltið á búðina, auðvitað urðum við svo að fresta því framm á mánudag vegna tæknilegra örðugleika, svo í staðin fyrir að setja inn mynd af nýja skyltinu sem aldrei kom fáið þið mynd af skiltaköllunum:

Ég var svo í vinnunni allan daginn að þjálfa upp nýjan starfsmann. Um kvöldið skellti ég mér svo út með bekkjasysturnum, það sem við köllum á heimamálinu; tøse-aften, já Snorri Freyr, hlæðu bara ;) Við elduðum godan mat og höfðum það hyggeligt:



Svo fórum við á Nexus (Torsdagsbarinn í skólanum). Eins og sjá má á myndunum hristum við hverja tusku, þar til svitinn fór að leka og tærnar að blæða!! Það má nú segja að við vorum ekki laus við tilþrifin:



Eins og sjá má þá er lítið gert af því að sofa þessa dagana.
Núna er ég í vinnunni, er að bíða eftir nýjum vörum sem eru á leiðinni. En í kvöld ætlum við Gummi á jólatónleika hjá kór sem Ingibjörg frænka hans Gumma syngur með. Annars fer þessi helgi af öllum líkindum í að gera verkefni.

<< Home