Þá er löng vinnuvika liðin, 55 tímar í 30 stiga hita, ég er byrjuð að þjálfa upp tvo nýja starfsmenn og ég held ég sé búin að redda flestu sem þarf að redda svona í byrjun. Það hefur líka tekið á að þurfa að díla við það að missa vin.
Ég er í verkfalli þangað til á mánudag, ætla ekki að vinna neitt heima og ætla ekki einu sinni að hugsa um vinnuna, ætla bara á ströndina á morgun og liggja þar í rólegheitum!! Í kvöld er ég að fara til Ingu Rósar og Gulla í grill svo það er mjög fínt, slepp við að elda.
En þangað til næst segi ég bara adíós

<< Home