Þegar skyndilegan dauðdaga ber að höndum fer maður að hugsa sinn gang, lifa hverju augnabliki eins og það sé það seinasta, biðja fyrir öllu og öllum sem manni þykir vænt um og aldrei taka neitt sem gefið.
Þrátt fyrir að ég og Steini vorum ekki náin var hann vinur minn og sorgin liggur þungt á mér. Steini var ungur og hraustur og átti framtíðina fyrir sér, hann fór frá okkur og skildi minninguna eftir, ég trúi því að hann sé kominn á betri stað þar sem hann bíður eftir okkur hinum.
Stelpur ég hugsa til ykkar og reyni að senda ykkur styrk til að takast á við sorgina.
Mér langar að senda innilegar samúðarkveðjur til þeirra nánustu.
Steini, þrátt fyrir að þú ert farinn mun minning þín lifa áfram í hjörtum okkar.

<< Home