Jæja þá er maður nú búinn að lifa af þrjá daga í bleikum bol.... bara 4 eftir!! Það er samt voða stemnig, og mikið að gera.... svo maður hefur ekki mikinn tíma til að standa og vorkenna sér :)
Góðkunningi minn og vinur Jamie Oliver.... þið vitið.... allsberi kokkurinn kom að heimsækja mig í vinnuna í gær.... hehehehehe, nei kanski ekki bara mig, meira svona að heimsækja Magasin, hann eldaði einhvern voða fínan mat fyrir fullu húsi af fólki, ég fór og kíkti á hann... maður verður nú að geta sagst hafa séð hann!!!
Í gær rakaði Gummi allar krullurnar sínar af :( en það er alls ekki slæmt, hann er bara sætur svona ;) en ég ætla nú samt að taka svona 1 viku í að syrgja... en eins og sáluhjálpin mín hún Sara segir: "Þetta vex aftur" mikill viskubrunnur hún Sara mín :)
Steinunn og Daníel koma í kvöld og verða yfir páskana... gaman gaman :) Við sitjum uppí sófa og bíðum eftir því að tíminn líði svo við getum náð í þau útá völl.
Sí jú leiter alígeiter

<< Home