miðvikudagur, mars 31, 2004

Hefu einhver séð mig í bleiku áður? Nei ég held nú síður!!! En einhverntíma er allt fyrst, núna gefst ykkur "once in a lifetime" tækifæri því á meðan Shop Amok er í gangi í Magasin þá neyðist ég til að vera í BLEIKUM polo bol.... jak... ekki alveg ég....

Í dag var yndislegt veður, ég borðaði hádegismat úti í sólinni, svo átti ég frí klukkan 15 því ég mætti í vinnuna fáránlega snemma. Ég fékk mér göngutúr heim úr vinnunni og fór svo út að skokka niður á strönd.

Annars er ég ekkert búin að gera nema að horfa á mesta plebbaþátt sem til er: "den falske millioner" gaurinn sem fær að velja úr stelpunum er algjör plebbi, lætur stelpurnar fara með sér í kyssuleiki og annað slíkt!!! En svo var uppáhalds þátturinn minn Orange County beint á eftir og bætti upp fyrir hrillinginn. Ætli maður fari ekki bara að lúlla sér bráðum.... þegar "sex and the city" er búinn.

   |