þriðjudagur, mars 30, 2004

HAMINGJA, HAMINGJA OG MEIRI HAMINGJA!! Í dag átti ég frí frá vinnu, svo ég svaf út, skokkaði svo niðrá strönd og til baka.... yndislegt! Svo var tekið til hendinni, verslað inn, vaskað upp, tekið til, þvottur þveginn og hengdur út. Svo var bara notið þess að vera í fríi og að hafa svona gott veður. Gummi kom heim um 17 tíðina, við elduðum pítur í kvöldmat... mmmm... annars er voða lítið að frétta.

Á morgun byrjar Shop Amok í Magasin, það gerir það að ég þarf að mæta í vinnuna kl. 6:45 og við höfum opið til kl. 22:00 á kvöldin.... rugl!!

Núna sitjum við Gummi uppí sófa ég með popp og kók og Gummi með bjór og popp, hann var orðinn hræddur um að bjórinn mundi skemmast ;) við erum að horfa á sjónvarpsþáttinn bluff, það gengur útá að fólk er að plata vini sína, núna er ein að segja vinum sínum að hann er flugmaður og eithvað.... frekar fyndið...

Jæja hætti að bulla, bið að heilsa úr höbninni

   |