sunnudagur, mars 28, 2004

Jæja þá er kominn sumartími í danmörku, allavega að nafninu til... Það á nú að hlýna á þriðjudag og miðvikudag á að vera yfir 15°C og sól.

Á föstudagskvöldið fór ég í kveðjupartý, ein stelpan sem ég er að vinna með er að hætta svo það var dansað langt fram á nótt.

Í gær skelltum við Gummi okkur svo í Fields, þið vitið, stóra verslunar miðstöðin sem var að opna. Það var bara rosa fínt, stórt og glæ nýtt. Við keyptum nú ekki mikið, þrjú pör af skokkum. Og svo fengum við okkur milk shake í kaffiteríunni.
Í gærkvöldi kom Heiða vinkona í heimsókn og við tókum bara eitt gott sjónvarpskvöld á þetta. Það er gott að slappa af inná milli. Heiða gisti hér í nótt og svo snæddum við okkur á kræsingum úr bakaríinu í morgun.

Annars gengur lífið sinn vana gang hérna á Elbagade.

   |