Allt gott að frétta héðan úr höfninni, eða eins og danirnir segja, eða öllu heldur danski rapparinn sagði: "Jeg er fra havnen!!" jó jó :)
Við bíðum bara eftir sumrinu það er rétt ókomið. Ég var reyndar aðeins of bjartsýn í dag og hengdi þvottinn útá snúru.... það endaði ekkert allt of vel, engin þurr föt til að nota í vinnunni á morgun, ÚPS!!
Steinunn og Daníel foreldrar Gumma ætla að koma í heimsókn yfir páskana 3.-12. apríl, það verður ekkert smá huggulegt! Svo er hún Magga vinkona mín úr Verzló og kærastinn hennar að fara að flytja hingað út, þau koma 6. apríl. Svo okkur á ekki eftir að leiðast í páskafríinu. Mikil tilhlökkun í gangi!
Gummi situr yfir verkefninu sínu allan daginn og fram á nótt, ég skil ekki hvernig er hægt að halda einbeitningu svona lengi, í dag er hann búin að sitja yfir þessu í heila 7 daga í röð!! ekkert smá duglegur, þetta gengur nú alveg ágætlega hjá honum held ég, allavega er hann kominn með þetta líka fína geisladiska-tónlistar-bókhalds-forrit á skjáinn sinn.
Þrátt fyrir að ég fái nú ekki mikla athygli þessa dagana þá reynir maður að vera þessi ástríka húsmóðir, sem eldar oní kallinn sinn og þvær af honum nærbuxurnar ;)

<< Home